28.09.2007

AppliCon fagnar um þessar mundir miklum tímamótum því í haust eru liðin tíu ár frá því SAP hélt innreið sína á Íslandsmarkað. Það var í október árið 1997 sem þriggja manna deild með samstarfssamning við SAP í Danmörku hóf störf innan Nýherja með það fyrir augum að bjóða íslenskum fyrirtækjum að nýta sér það sem þessi öflugi alþjóðlegi hugbúnaðarrisi hefði fram að færa. Á þeim tíma var takmarkað úrval af öflugum fjárhagslausnum fyrir stærri fyrirtæki og stofnanir á Íslandi og var algengast að notaðar væru smærri heimasmíðaðar lausnir.

Fljótlega eftir stofnun deildarinnar náðust samningar um innleiðingu SAP hjá Pósti og síma. Strax um haustið var hafist handa við innleiðingu lítillar SAP-einingar sem sá um móttöku fjárhagsgagna og birtingu yfirlita hjá Pósti og síma. Sú eining var tekin formlega í notkun um áramótin 1997-1998. Næsta árið var svo haldið áfram með innleiðingu stærra SAP-kerfis hjá stofnuninni og fleiri fyrirtækjum.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá. Pósti og síma hefur verið skipt upp og er ekki lengur í eigu hins opinbera eins og flestir vita en bæði fyrirtækin hafa haldið tryggð við SAP og nota SAP-lausnir enn þann dag í dag. Þriggja manna SAP-deildin innan Nýherja hefur vaxið hratt á þessum tíu árum og umbreyst í AppliCon, alþjóðlegt fyrirtæki með starfsstöðvar í fjórum löndum og hátt í 200 starfsmenn. SAP-lausnir eru enn meginundirstaða þjónustu AppliCon en við hefur bæst deild sem býður sérfræðiþjónustu í Microsoft-lausnum.

SAP hefur líka þróast hratt á alþjóðavísu og stöðugt sótt í sig veðrið. Sérstaklega hefur vakið athygli hve vel fyrirtækinu hefur tekist að þróa lausnir fyrir smærri og meðalstór fyrirtæki síðustu misseri. Sú þróun heldur áfram af fullum krafti og til að mynda kynnti fyrirtækið hinn 20. september nýja nálgun fyrir meðalstór fyrirtæki sem kallast Business ByDesign og felst í hýsingu á einföldum en öflugum SAP-lausnum þar sem greitt er fast mánaðargjald fyrir hvern notanda.

Það má því búast við að næstu ár verði ekki síður spennandi en þau tíu sem liðin eru frá því þriggja manna SAP-teymið tók til starfa á sínum tíma.