13.06.2007
AppliCon hefur undanfarin 3 ár innleitt bankalausnir byggðar á SAP viðskiptahugbúnaði hjá viðskiptavinum hérlendis og erlendis. Þá hefur AppliCon aðstoðað við að tengja slíkar lausnir við önnur staðbundin kerfi og internet banka. Síðastliðið ár hefur AppliCon þróað eigin internet banka lausnir ofan á SAP Core Banking System. Lausnirnar eru þróaðar í samstarfi við viðskiptavini og er áætlað að þróun ljúki að mestu í haust. Undanfarnar vikur hafa svo sérfræðingar AppliCon unnið að aðlögunum og uppsetningu á þessum lausnum og er áætlað að taka að hluta til í notkun í sumar hjá erlendum bönkum.
Internet banki frá AppliCon er veflausn sem þróuð er með nýjustu tækni í Microsoft .NET með þjónustu högun (SOA) og er að fullu samþætt SAP kerfinu. Lausnin inniheldur öflugt og sveigjanlegt notendaviðmót og þjónustulag sem tryggir örugga meðhöndlun á gögnun og samskipti við bakenda kerfi.
AppliCon býður fjármálafyrirtækjum hérlendis og erlendis uppá þjónustu og heildstæðar bankalausnir, byggt á SAP og Microsoft lausnum og tækni.
