07.12.2006

AppliCon stóð fyrir ráðstefnu fimmtudaginn 30. nóvember í Iðusölum við Lækjartorg um framtíðina með SharePoint 2007. Þetta var vel til fundið þar sem Microsoft gaf út Office 2007 þann sama dag. Ráðstefnan heppnaðist mjög vel og mættu um 70 aðilar frá liðlega 50 fyrirtækjum. Áhugi á SharePoint er því mikill og fyrirtæki eru farin að sjá möguleikana sem bjóðast með lausnum í SharePoint umhverfi.

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Ráðstefnan hófst með inngangi Kristjáns Jóhannssonar framkvæmdastjóra AppliCon þar sem Kristján sagði frá AppliCon og stefnu fyrirtækisins í Microsoft málum. Síðan tók við formleg dagskrá þar sem ráðgjafar AppliCon útskýrðu nýtt upplýsingaumhverfi SharePoint og bentu á þá möguleika sem í boði eru. Meðal annars var rætt um lausnir sem AppliCon hefur unnið að með sínum viðskiptavinum og farið yfir nýjungar í lausnamengi SharePoint 2007 og Windows SharePoint Services 3.0. svo sem öfluga leitarmöguleika í viðskiptamannakerfum, nýtingu Sharepoint sem viðskiptagreindartóls og fleira. Einnig voru skjalastjórnunarmöguleikum með SharePoint 2007 gerð góð skil, en sá hluti hefur verið mikið endurbættur frá fyrri útgáfu. Rætt var um möguleika þess að nýta SharePoint sem vefumsjónarkerfi og stiklað á stóru um viðskiptaferla og forms sem gerir allt verkflæði í SharePoint mun auðveldara í meðhöndlun.

Ráðgjafar AppliCon stigu á stokk hver á fætur öðrum og ræddum um nýja möguleika SharePoint. Næst var tekin fyrir viðskiptagreind og hvernig Excel Services hluti SharePoint, nýr hugbúnaður, gerir notendum kleift að vinna gagnvirkt með Excel skjöl á netþjóni, tengja við viðskiptagögn og læsa aðgangi að ákveðnum upplýsingum. Síðan var rætt um samþættingu SharePoint við viðskiptakerfi og þá sérstaklega SAP og Microsoft CRM. Þetta er orðið mun auðveldara með Business Data Catalog í SharePoint.

Að lokum fóru ráðgjafar AppliCon yfir tvær nýjar vörur sem munu koma út fljótlega eftir áramót fyrir SharePoint, en það er Office2SharePoint og Outlook2SharePoint. Bæði þessi forrit eru auðveld í uppsetningu og notkun og gera notendum kleift að vista og sækja skjöl sem geymd eru í SharePoint með mun auðveldari hætti en í SharePoint 2007. Að lokum var rætt um þjónustu AppliCon á sviði Microsoft lausna og hvernig fyrirtækið hyggst vera í farabroddi á sviði Microsoft hugbúnaðarlausna.

Góður rómur var gerður að ráðstefnunni og fyrirhyggju AppliCon að halda ráðstefnu á Íslandi um hugbúnað sem kom á markað samdægurs í Bandaríkjunum. Framtíðin er björt hjá AppliCon og þátttakendum ráðstefnunnar, fyrirlesurum jafnt sem gestum, augljós þau tækifæri og þær lausnir sem framundan eru.