17.11.2006

Ráðstefna 30.nóvember á 4.hæð í Iðuhúsinu við Lækjargötu

Fimmtudaginn 30. nóvember heldur AppliCon ráðstefnu um hugbúnaðarlausnir sem byggjast á Microsoft Sharepoint. Sharepoint er vefrænt hópvinnukerfi með innbyggðu skjala- og vefumsjónarkerfi ásamt öflugri verkflæðisvél.

AppliCon ehf. hefur sérhæft sig í ráðgjöf og lausnum tengdum SharePoint og hafa mörg af stærri fyrirtækjum landsins nýtt sér sérþekkingu AppliCon.

Þann 17. nóvember gaf Microsoft út næstu kynslóð af Sharepoint; Windows Sharepoint Services v3 og Microsoft Office Sharepoint Server 2007. Á ráðstefnunni munu sérfræðingar frá AppliCon ehf. kynna Sharepoint og þær nýjungar sem eru væntanlegar með nýútkominni útgáfu ásamt því að fjalla um lausnir og reynslu af verkefnum.

Ráðstefnan er ætluð þeim sem hafa umsjón með upplýsingatæknimálum eða innri upplýsingaveitum fyrirtækja og er áhersla lögð á lausnamiðaða nálgun.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------- 
Aðgangseyrir á ráðstefnuna er enginn, takmarkað sætaframboð.