31.07.2006
Mamma ehf. telur um 100 starfsmenn og nýtir Microsoft Dynamics CRM m.a. í umsjón markhópa, stýringu og úthlutun úthringiverkefna og sölu- og þjónustuheimsókna ásamt örðum samskiptum við viðskiptavini. Kerfið einfaldar alla vinnuferla ásamt því að gefa rauntímayfirlit yfir árangur og eftirfylgni sölu- og þjónustuverkefna á hverjum tíma. Innleiðingin gekk hratt fyrir sig og hafa starfsmenn verið fljótir að ná að tileinka sér ný vinnubrögð, enda er kerfið einfalt og þægilegt í viðmóti.
Microsoft Dynamics CRM er viðskiptahugbúnaður sem aðstoðar fyrirtæki í allri stjórnun viðskiptatengsla. Það sameinar sölu- markaðs- og þjónustuuplýsingar undir einn hatt og gefur þar af leiðandi betri yfirsýn yfir viðskiptavini fyrirtækisins. Starfsmenn AppliCon hafa viðtæka reynslu og þekkingu á hugbúnaðinum og innleiðingu hans hjá íslenskum fyrirtækjum. Frekari upplýsingar á heimasíðu AppliCon /microsoft/crm/
Mamma ehf. (www.mamma.is) er sölu- og þjónustufyrirtæki í eigu Dagsbúnar hf.. Mamma sérhæfir sig í að þjónusta heimili þegar kemur að fjarskiptum, afþreyingu og öryggisþjónustu.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Hilmarsson, hópstjóri Microsoft lausna hjá AppliCon ehf., í síma 563 6132 eða á tölvupóstfangið sh@applicon.is
