09.06.2006
“Core Banking System Project 2006 – Retail Banking”
Tímaritið The Banker, sem er breskt fagtímarit um bankastarfsemi, hefur veitt Kaupþing Banka (KB Banka) viðurkenningu fyrir árangursríkasta verkefnið innan kjarnabankastarfsemi (Core Bankning). Verðlaunin útleggjast "....the most innovative Retail Banking IT-projects of the year 2006" og eru veitt Kaupþingi vegna uppbyggingar bankans á upplýsingakerfum fyrir kjarnastarfssemi byggt á SAP bankalausnum.
Valið byggist á 350 umsóknum sem skipt er í 35 flokka og eru verðlaunin veitt bankanum og þeim samstarfsaðila sem Kaupþing hefur unnið verkefnið með, sem eru AppliCon og SAP. Saman unnu þessi fyrirtæki því til nafnbótarinnar “Core Banking System Project 2006 – Retail Banking”.
"Kaupþing hefur vakið athygli The Banker fyrir stöðugan vöxt fyrirtækisins. Þessu til stuðnings hefur Kaupþing innleitt SAP upplýsingakerfi og þannig byggt upp sína kjarnastarfssemi til að þjónusta viðskiptavini sína þvert á vöruframboð bankans" segir Dan Barnes, ritstjóri hjá The Banker.
Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn að kvöldi 8. júní á Sheraton hótelinu í London þar sem Ásgrímur Skarphéðinsson, CIO Kaupþing Group, veitti verðlaununum viðtöku ásamt fulltrúm frá AppliCon og SAP.
AppliCon hefur frá upphafi verið í forsvari fyrir innleiðingu á nýrri bankalausn í SAP fyrir Kaupþing Banka auk þess að starfs með fjölda fyrirtækja á sviði bankalausna.
Sjá fréttatilkynningu á ensku:
Press_Release_Kaupthing_recives_The_Banker_awards_080606
