02.05.2006
Launakerfið hefur nú verið tekið í notkun og er þar um að ræða fyrsta áfangann í innleiðingu SAP-fjárhagsupplýsingakerfisins.
Til gamans má geta þess að nokkur fyrirtæki á Akureyri nota SAP launkerfi frá Applicon og nú þegar Akureyrarbær bætist í þeirra hóp má segja að ríflega fjórði hver launþegi á Akureyri fái í mars greidd laun úr SAP launakerfi.
Næsti áfangi í innleiðingu á SAP-mannauðskerfinu er nýtt starfsmannakerfi sem m.a. opnar starfsmönnum aðgang að víðtækum upplýsingum í gegnum vefinn.
Þar munu starfsmenn meðal annars geta skoðað launaseðla, viðveru sína, stöðu orlofs, sótt um námskeið o.s.frv. Einnig verður mögulegt að sjá launaseðla í heimabanka. Samstarf starfsmannaþjónustu Akureyrarbæjar við Applicon hefur verið mikið og gott síðustu.
