Applicon hefur undanfarin ár tekið þátt í að hanna og þróa upplýsingatæknilausnir fyrir flutningafyrirtæki.
Applicon hefur á að skipa breiðum hópi ráðgjafa með reynslu af innlendum sem alþjóðlegum verkefnum auk þess sem fyrirtækið hefur skapað sér þau tengsl sem nauðsynleg eru til að þjónusta viðskiptavini sína sem allra best.
Applicon þróaði og hannaði flutningalausn með áherslu á fjárhags- og innkaupaferla auk afkomugreiningar, í samvinnu við Samskip.
Helstu eiginleikar SAP flutningalausnar
- Samþætting við logistic kerfi Samskipa – Fraiser Williams, Landflutningakerfi, Gámakerfi o.s.frv.
- Sölupöntun tekur við upplýsingum um verð, víddir o.s.frv.
- Innkaup frá þriðja aðila – samþætting við sölupöntun, önnur innkaup.
- Reikningagerð.
- Afkomugreining – greining m.a. á afkomu verka (sendingu), siglingaleiða, viðskiptavinahópa, skipa, söluskrifstofa, sölumanna.
- Vöruhús gagna.
- Innra bókhald – kostnaðarstöðvar, hagnaðarstöðvar, verkefni, flutningur á staðalkostnaði milli kostnaðarstöðva og sendinga.
- Ytra bókhald – bókhald, viðskiptamenn (innheimta), lánardrottnar.
- Eignakerfi.
Nánari upplýsingar veita ráðgjafar Applicon í netfanginu applicon@applicon.is eða í síma 563 6100.