Vigor Orka er eitt útbreiddasta orkureikningakerfi landsins. Meirihluti veitufyrirtækja á landinu nota Vigor Orku. Liðlega 70% allra reikninga frá orkufyrirtækjum landsins hafa orðið til í upplýsingakerfinu Vigor Orku.
Vigor Orka er alíslenskt kerfi. Það er öflugt og sveigjanlegt og notað af fyrirtækjum sem senda út allt frá 100 og upp í 140.000 reikninga á mánuði.
Vigor Orka tengist fjölmörgum öðrum kerfum, eins og Vigor Heimlagnakerfi og Vigor Verkbókhaldi og einnig landupplýsingakerfum, mælaálestrakerfum, banka- og innheimtufélögum.
