Applicon hefur undanfarin ár lagt ríka áherslu á að hanna og þróa upplýsingatæknilausnir fyrir banka og fjármálastofnanir.

Fyrirtækið hefur breiðum hópi ráðgjafa á að skipa með töluverða reynslu af alþjóðlegum verkefnum auk þess sem það hefur skapað sér tengsl sem nauðsynleg eru til að þjónusta viðskiptavini sína sem allra best.

Lausnir Applicon fyrir fjármálastofnanir eru meðal annars, Applicon i-banking, Applicon e-services, IB NET, Service Broker, Microsoft Business Intelligence, Applicon Mannauður, Applicon Launa- og Samstæðuuppgjör.

Meðal viðskiptavina Applicon í bankalausnum eru Íslandsbanki, Arion og Avant.

Applicon hefur auk þess tekið þátt í fjölda verkefna á erlendum mörkuðum, en meðal viðskiptavina erlendis má nefna Nordea og ING sem eru meðal stærstu fjármálastofnana í Evrópu.