Sérþróaðar lausnir fyrir hinar ýmsu atvinnugreinar

Á undanförnu árum hefur Applicon lagt áherslu á að sérsmíða lausnir fyrir ýmsar atvinnugreinar. Mikil vinna hefur farið í að hanna og þróa lausnir sem henta ólíkum starfsgreinum. Markvist er unnið að því að byggja upp þekkingu og sambönd á því sviði.

Atvinnugreinar sem Applicon hefur þróað sérsmíðaðar lausnir fyrir eru
fjármálastofnanir, flutningafyrirtæki, sjávarútvegsfyrirtæki, orkufyrirtæki, sveitarfélög og tryggingafélög.

Fjármálastofnanir

Applicon hefur undanfarin ár lagt ríka áherslu á að hanna og þróa upplýsingatæknilausnir fyrir banka og fjármálastofnanir. Fyrirtækið hefur breiðum hópi ráðgjafa á að skipa með töluverða reynslu af alþjóðlegum verkefnum auk þess sem það hefur skapað sér þau tengsl sem nauðsynleg eru til að þjónusta viðskiptavini sína sem allra best.

Nánar

Flutningafyrirtæki

Applicon hefur undanfarin ár tekið þátt í að hanna og þróa upplýsingatæknilausnir fyrir flutningafyrirtæki. Applicon þróaði og hannaði flutningalausn með áherslu á fjárhags- og innkaupaferla auk afkomugreiningar, í samvinnu við Samskip.

Nánar

Sveitarfélög

Applicon hefur lagt áherslu á að þjónusta sveitarfélög vel og hafa ráðgjafar fyrirtækisins viðamikla reynslu og þekkingu á greininni. Þróun á sérstakri lausn fyrir íslensk sveitarfélög hefur verið gerð

Nánar

Tryggingafélög

Applicon hefur undanfarin ár tekið þátt í innleiðingum og þróun á lausnum fyrir tryggingafélög í SAP. Áhersla hefur verið lögð á fjárhags- og innheimtuferla í samvinnu við stærstu tryggingafélög landsins.

Nánar

Orkugeirinn

Undir Vigor lausnum býður Applicon upp á Vigor Orku sem er eitt útbreiddasta orkureikningakerfi landsins. Það er öflugt og sveigjanlegt og notað af stórum sem smáum veitufyrirtækjum.

Nánar

Sjávarútvegur

Applicon Sjávarútvegslausn er viðskipta- og mannauðslausn fyrir sjávarútvegsfyrirtæki sem setur vaxtarmöguleikum og útvíkkun fyrirtækja engar skorður.Lausnin var þróuð í samvinnu við Samherja og Marel.

Nánar